OLE OLE OLE OLEEE MILAAAN OLEEE!!!

Erum við ekki að grínast með stemninguna hérna í Milano eftir leikinn í gær?  Fyrir þá sem live under a rock, eða á íslandiTounge - þá vann AC Milan (besta lið í heimi), 2-1 á móti Liverpool(geta ekkert), og þar með Champions league í 6 sinn!!!

Su cantiamo tutti insieme Rossoneri ale'
M...I...L...A...N nel mio cuor
il Milan....il
Milan
nel mio cuor...nel mio cuor
e per sempre Rossonero io sarò...

Maður heyrði lætin um ALLAN bæinn, hérna í hverfinu okkar heirðust lætin úr bænum langt eftir að leikurinn var búinn, og bibuðu allir bílar, og heyrðist í öllum lúðrum, og öskrum, og söng... geðveik stemmning, svo var líka veðrið að taka þátt með smá light-show, það voru eldngar en ekki þrumur og engin rigning.... wierd... ANYways, þá horfðum við á leikinn heima hjá Francy, með fullt af krökkum, pöntuðum pizzur og fenugm okkur snittubrauð og snakk, aðeins þægilegra en að vera pakkaður niðrá piazza Duomo, og sjá ekkert á skjáinn sem er þar, fyrir blysum og hooligansJoyful Eftir leikin var farið í Billiard heima hjá Francy og svo horft á biomynd heima hjá okkur.

In OTHER news, þá er komið sumar, ójá, og með sumrinu kemur HEITA veðrið, og með því RAKI, og með því creepy crawlies, aka PÖDDUR, og með þeim MOSQUITO FLUGUR.... og með þeim fær maður no sleep, eaten alive, og sér eftir því að vera ekki búin að setja upp ný flugnanet þar sem þau gömlu eru ekki að gera sitt gagn....Pinch  Samt sem áður þá held ég að líkami minn hljóti að vera að þróa e-ð mótefni við þessum bitum - i hope.  Og hitin fór í gær uppí 36 stiga hita, sem ég myndi trúa vel, var úti í allan dag og fann vel fyrir því - í dag kveiktum við fyrst á Airconditioning hjá okkur, enda ekkert hægt að læra í þessum hita...

Laura segir mér að neighbour from hell sé að flytja eftir einn og hálfan mánuð!! woohoo, you know what that means - GRILLPARTY hjá okkur!!!

By the way Halli, þú skildir eftir e-r passa myndir hérna, sem krakkarnir fundu, og eftir að ég var búin að kveikja á kertum um daginn, þá lögðu strákarnir myndirnar þínar undir tvo kerstatjaka, og voru hugsanlega með e-ð ceremony.... eh.... I think they miss you.... allavegana er "halli alter" hérna hjá okkur núna.... creeepy.....

CIAO CIAO FOR NOW


Desperte times...

Nú koma  prófin hlaupadi að manni - og mun þeirra tímabil standa yfir í tvær vikur.  Síiðustu gestir okkar fóru í fyrramálið aftur til Íslands, og erum við nú bara tvö heima í fyrsta sinn í tvo mánuði - frekar tómlegt, en það er e-ð svo calming við þetta.  Nú verður bara verið að læra það sem eftir er!Crying

Það er samt sem áður ekki það sem ég ætlaði að tala um... þar sem það yrði einum of leiðinleg Blogg færsla, eins og margar undanfarnar færslur hafa verið...  ANYWAYS - þá þarf ég að segja frá nágrana mínum, hún býr á hæðinni fyrir ofan, og meðan ég er að skrifa þetta þá finnst mér eins og hún sé Tap-dancing away, eða að missa sig í að færa alla stóla á heimilinu til og frá.  Maður lendir á mörgum nágrönum í lífinu, hvort það sé á hóteli, heimili, skóla bekk, flugvél, eða whatever, en engir eru þeir jafn skemmtilegir og t.d. Neighbours, þar sem allir eru vinir og vita allt um alla og eru allir að sofa saman, eða rífa í sundur fjölskyldur aðra.... not any point in that, EN minn nágrani er geðveik(in the worst of senses)...

  1. Hér á Ítalíu, og vani hjá mér, heilsar maður fólki þegar maður mætir þeim í stigagangi, inngangi, eða jafnvel útá götu... Það er einfaldlega alltaf gert, common courtesy, litlu krakkar hennar kellingu á annari hæð gera það - maður hennar er eins og undirgefinn hundur og gerir það alsekki, og hún horfir einfaldlega á mann eins og moðingja þegar maður reynir að heilsa henni.  Fyrst heilsaði ég þeim alltaf, en fékk ekkert svar, þannig að núna geri ég það einfaldlega ekki lengur, treat others as you want to be treated.GetLost
  2. Annað sem fer í taugarnar á mér með þessa norn er að í blokkinni okkar er einn aðal ingangur, hurðin á alltaf að vera lokuð, en þegar maður sér að það er einhver úr blokkinni að koma inn á eftir sér, þá skilur maður hana eftir opna, common sense... Nei nei, hún sér mann á bíla planninu, að taka 6 innkaups poka úr skottinu, og hún liggur við hleypur inn til þess að loka - svo þegar hún er ennþá að bíða eftir lyftunni þegar maður kemur að inngangnum og maður fer að leyta að lyklunum sínum með 6 poka dreifða út um allt... þá grettir hún sig bara og hugsanlega kemur einhver krakki hennar og opnar fyrir mann.Pinch
  3. Í hvert sinn sem maður labbar framhjá blokkinni, stendur hún útá svölum og fylgjist með manni, með sígó í annari og baby í hinni. OJ.
  4. Maður heyrir hana HUNDSKAMMA börnin sín ef þau vakna á nóttinni eða eru e-ð að gráta.  Það heyrist það vel að hún gæti alveg eins hringt í mig og beðið mig um að hlusta.
  5. Þegar við erum með gesti í mat eða drykki, þá eru þeir aldrei neitt margir, mesta lagi svona 5-6 manns.  Og situm við oft, með smá tónlist í tölvunni, eða á gítarnum og spjöllum saman og höfum það gott.  Situm stundum nokkur útá svölum að spjalla, á mjög appropriate hátt, eins og allir í blokkini gera.  Og sendir þessi tuðra ekki einhvern vigilante(hverfis löggu) til að biðja okkur um að hafa hljótt.  Hún getur ekki sjálf komið niður um eina hæð... eins og hún gerði þegar við vorum einu sinni fyrir utan húsið að heilsa nokkrum vinum, og hún kvartaði í frænku mína daginn eftir, ekki í mig - um að við vorum með of mikil "partý" í gangi.
  6. Grill - allir íslendingar hafa rétt á að grilla.... ekki á ítalíu, í okkar blokk er það bannað, en þar sem við höfum gert það síðustu 15 árin, þá er litið framhjá því.  En nei, henni finnst ALLUR reykurinn fara beint inn til hennar.... ekki væri hægt að biðja hana um að loka svölunum í þessa 2 tíma maximum þar sem við erum að grilla?  Þegar við erum tvö ein heim grillum við svona 2 á mánuði- en hefur hún nú sent "superintendant" til okkar sem segir að það sé alveg bannað, og í mesta lagi (út af því að hann er "a friendly guy") mun hann líta fram hjá því ef við grillum einu sinni í mánuði, bara.

Beat that and I will give you a gold star - nágranar okkar hér á sömu hæð og við, kvarta aldrei, eru oft með gesti, tónlist og góðan mat, og finnst okkur það bara sjálfsagt !  En ég er nú að spá í að kvarta um kellinguna á annari hæð, yfir sígarettu stubbum, barna gráti, Enya tónlistinni hennar, og öskrum á kallinn og börnin aðþví að þetta er útí hött.  Hún fær bara the evil eye héðan í frá.  Malocchio....

Hefur e-r lent í svona nagers áður, or am I alone on this one?

Katy Skaty


Að leka niður....

Aloha -

Þessi helgi voru crazy - tel fimmtudaginn með - þá fórum við á Beyonce tónleikana, náðum þá seinustu 3 lögunum hennar sem voru Cross Roads (fuckin-A þetta var geðveikt lag), irreplaceable (to the left to the left I LOVE IT, hefði verið meira en nóg að heyra bara þetta), og svo minnir mig að Deja Vu hafi verið síðasta - eftir létt Encore... geðveikt.Whistling

Á föstudaginn var farið um bæinn, eins og ég nefndi í fyrri færslu - djammið var geðveikt- fórum á "The Club" en þetta voru síðustu helgin þar, því nú fer sumar tímabilið að byrja, þetta eru clubarnir allt öðruvísi.... anyways, vorum á Privé (aka VIP) og með sér bása.  Allir voru í góðum gír, enda alveg nokkrir sem maður hittir ekki oft mættir í bæinn.  Anyways, þá leið þetta kvöld of hratt.Halo

Á Laugardaginn fórum við út að borða á "Al Mulino" sem er Michelin staður hérna rétt hjá, þar borðuðum við frábæran mat og drukkum gott vín, fórum svo heim að sofa, þar sem við þurftum að vakna 2 tímum seinna, kl 4:00, til að keyra Halla&Önnu uppá flugvöll....

Á leiðinni uppá flugvöll tökum við eftir að allur aðgangur að hraðbrautinni er lokaður.... og að GPS tækið okkar var alveg að fríka út þegar við reyndum að fara sveitavegina þangað.... í endan vorum við búin að keyra í tvo tíma, þegar þetta átti að verða 40 min. ferð.... Svo komumst við uppá flugvöll og þá eru krakkarnir búnir að missa af check-in og þurftu að panta flug fyrir kl10:00.... great.... svo snúum við Stefán heim á leið, og það átti að vera búið að opna fyrir hraðbrautina, og við borgum vegar tollinn en þegar við komumst inná, þá er bara biðröð og ekki búið að opna neitt, situm þarna í einn og hálfan tíma með geðvondum ítölum .... og komumst loksins heim að sofa kl 10:00.... needless to say þá var þetta ekki skemmtilegasti leiðangur sem ég hef farið í....GetLost

Dagurinn í dag hefur farið í svefn og lærdóm - fengum okkur pizzu í kvöldmat og horfðum á Grease.  Frekar tómlegt eftir að Halli&Anna fóru, skrítið að hafa þau ekki hérna, Auðvitað fóru þau strax þegar vibba hitinn og Mosquito flugurnar láta sjá sig! En nú er ekkert borðtennis, ekkert Heroes, ekkert rifrildi (nei djók), ekkert verið að skamma mann fyrir að poppa eða hvetja mann til að poppa, en já svona er lífið, vonandi þau kíkji aftur í heimsókn til okkar bráðum - veit að þeim finnst við vera svo skemmtilegGrin  En nú tekur alvaran við og verður lærdómur og gymmið aðalatriðin fram að sumri...

Til hamingju þið sem eruð búin í prófum - maður er búin að heyra ýmislegt frá Íslandi, euróvision, kosningar(X-D), próf, djamm, veður..... endilega keep me updated!

ciao darlings

hvaða lag:

"Wont go to bed till I'm legally wed!"


party

milano rölt í dag með kristínu&co.  og svo nammi góður "góður matur"LoL

Öll dauð þreytt eftir daginn - sáum forstjóra AC Milan á via della Spiga - flottustu shopping götu í milano - but whatever - annars erum við stefán, halli og Anna að fara að djamma feitt right about now - verðum 25 manns með VIP svæðið á The Club ALL TO OUR SELVES... loving it - anyways, im ready to party! hear from y'all later.Wink  Bið að heilsa öllum og góða skemmtun í kvöld!

God Speed....

drykkur kvöldsins:

Töfra Teppið - Araldo's signature drinkCool

"For this sweet americano - who knows little of your speech, be a nice italiana and start to teach"... love it!


B-to-the-CE

THATS RIGHT - nú uliggur mín leið að DATCH Forum á Beyonce tónleika... allllriiight!Tounge

Svo 1 júní verða Justin Timberlake tónleikar where sexy will be brought back.... geez...Errm

Stefán er as-we-speak að sækja Kristínu&co. uppá flugvöll og eru þau á leiðinni heim - erum ekkert smá spennt yfir að hafa þau hérna í nokkra daga, svo lángt síðan við hittum þau síðast!!LoL

En svo fara halli&anna bráðum aftur heim til Íslands, þótt að ég viti að þau vilji það ekkert í alvöru..... er það nokkuð??? Woundering

Peace Out homies

hvaðan:

"Standing in the front yard telling me how I am such a fool - Talking about how I'll never ever find a man like you"


my lovely milano

Sælar

Nú er veðrið í milano ekki beint eins og margir myndu búast við - þrumur, eldingar og rigning.  Mér finnst þetta veður yndislegt, hitinn var að verða einum of, raki að bætast við og svona.  Þannig að þegar ég vaknaði um morguninn við þrumur- þá kom ekki smá kósý feeling í mann.

Á miðvikudaginn fórum við nokkrir íslendingar saman á Indian Soul Café að horfa á Milan strákana okkar RÚSTA Man Utd. muhahaha - þetta var bara fyndið, og gaman að sjá "gömlu" Milan karlana sýna það sem í þeim býr!

Við fórum líka út að borða með íslendingunum um daginn og fórum við að sjálfsögðu á Brasíliska - það var laugardagur þannig að the dancers came out - og hoppuðum við stelpurnar allar fram á dansgólfið og tókum nokkur samba spor með þeim! heheWhistling

Annars erum við að reyna að komast e-ð í golf með vin okkar In-hoon en hann er með 4 í handicap og vill endilega fá að monta sig e-ð.  Segist vilja sýna okkur nokkur töfrabrögð sem er bara fyndiðWizard og við öll til í það - svo erum við líka að fylgjast með Italian Open mótinu, fórum þar við í gær og fylgdum Birgir Leif nokkrar holur - honum gékk frábærlega, held við séum kannski smá good luck Wink  Og vonum við að honum gangi ennþá betur þegar mótinu verður haldið áfram (því var frestað vegna veðurs)...

Allt frábært að frétta úr skólanum - mikið að gerast þar sem prófin eru bráðum, í lok júní - en við erum the top students þannig að ég hef ekki of miklar áhyggjur af neinu Halo

Bið að heilsa í bili - er að skrifa ritgerð og það vantar circa about 5 blaðsíður í enda....

ciao dolls!

er ekki með neitt lag this time - en kom on, eins og eru margir sem koma inná þetta blog every day - comment and tell me something interesting Wink


mánuðurinn

Heil og Sæl,

Nú er mánuður síðan að bloggar var síðast og er meira en nóg búið að gerast.Joyful

Including:

  • Viku ferð til Kanarí - með Stefáni og fjölskyldu hans.
  • Ma&Pa & co. komu í heimsókn
  • Golf tan - I like it.Cool
  • Ég vann í kvennflokki í "Fjólugötu Páska Open by Invitation Only"Tounge
  • Gólf kennsla með Mr. Jason Lewis
  • Fórum á Bayern Munchen vs Milan leikinn á San Siro
  • Góður matur
  • góðir vinir
  • djamm og partý
  • sleepovers and dinner parties
  • Tennis
  • Gym
  • O.s.frv...

Ég ætla ekkert að fara of mikið útí allt þetta - hinsvegar vildi ég þakka fyrir frábæra páska ferð til Kanarí - þetta var án gríns mesta chill ferð sem ég hef farið í - ekkert stress.  Ég fékk líka ekkert smá mikin lit, og er nú öll útí freknum.  Samt sem áður, þegar ég kom aftur heim til Milano var ég spurð "bíddu - fórstu ekki með Stefáni til Kanarí? Þú ert ekkert brún"Frown

Nú hinsvegar er allt á fullu - lærdómurinn kicking into gear - golfið líka - við erum í kennslu  hjá Golf Director á geðveikum velli sem heitir Ambrosiano Golf Club - og er ég að stefna á að rústa Fjólugötu Open í sumar Wink  Kannski maður reyni líka að stefna á einhver mót hérna - eða reyna að fara pro... ok, easy there tiger... Whistling

Í gær elduðum við mexikó mat sem heppnaðist mjög vel- nema að maturinn var svooo sterkur (mín vegna) að hann varð einum of mexiko for me.  Í dag var línuskautað á fullu og farið að líta eftir Giacomo og Alexöndru krúttunum tveimur, og á morgun byrjar skólinn aftur eftir 4 daga frí.

Það er verið að vinna í mynda síðu sem verður set upp fyrir þá sem hafa áhuga - ég skal nú bara segja það að á föstudaginn var partý heima hjá vinkonu minni og þar tók ég 200 og e-ð myndir, þannig að það vantar ekkert in that epartment LoL

Anywhooo - látið mig vita hvað er að frétta frá Islandi og London og USA- miss you guys, tu tu

Lovey Dovey

Kata Skata

- I got a giggle in my talk and a wiggle in my walk -

Úr hvaða lagi?

"Act your age, mama - Not your shoe size"


lé week-énd

nú er sunnudagskvöld - og situm við öll og erum að glápa á sjónvarpið ofcourse... Auðvitað er klukkan EIN mínuta yfir miðnæti og á hún ANNA BJÖRG, aka roomie, afmæli! (-enter bday song here-)Whistling

Þessa helgi var "ógó" gaman - chiara vinkona kom í heimsókn og gisti á föstudaginn, og vorum við með svaka matarboð til heiðurs þess! Við elduðum 1100 gr af kjöti, salsiccia, elduðum kjúkling, maís, hrísgjón, salad, bakaððar kartöflur, and so on...  Drukkum eðal raup vín og hvítvín - nammi namm.  Svo komu Francy og Nico vinir okkar í heimsókn og vorum við með létt partý til 5 um nóttina.  Laugardaginn urfti ég að vakna eld snemma og taka til, the profesionals came kl 10 og voru heima hjá okkur í allan dag, og fór dagurinn enfalslega í það að þrífa fyrir the homecoming of the Queen BeeHalo Um kvöldið fórum við með Chiöru og Carolina út að borða á Indian Soul - ógéðslega góðan mat og nokkra drykki - live music og alles - svo hoppuðum við uppí mini-van og fórum niðrí bæ á cocktail bar sem heitir ARTHÉ og er í dass uppáhaldi hjá okkur Stefáni - drykkirnir eru SVO flottir að það hálfa væri nóg, það er eins og það séu alltaf nokkur tug ávaxta í glasinu, me likey.  Þar voru fullt af vinum mínum sem ég hef ekki séð soldið lengi - þannig að þetta var ógéðslega gaman!Wizard

Í dag komu cleaning ladies aftur, og þurfti ég að vakna eld snemma - og er dofin - við höfum verið að klára að hafa allt til, þar sem familien kemur á morgun.  Pöntuðum okkur pizzu (sem tók, as usual, 2 tíma til að komast hingað) og erum bara í léttu chilli.  SUPER SKEMMTILEG HELGI - og svo er bara allt að gerast næstu dagana..... bittersweet GetLost

jæja allir að lúlla ciao ciao!!!


fréttir frá mílanó

Sælar, 

Þar sem mars er afmælis mánuður óttans vil ég bjóða öllum til hamingju með afmælið!! Ég held ég sé nú búin að hringja og syngja fyrir flest alla

Á afmælinu mínu, 3 mars, fékk ég að sofa út - og þegar ég vaknaði voru ný bakaðar smákökur í morgunmat LoL Það var svo gott veður að við skelltum okkur í golf, og svo í göngutúr um hverfið.  Fengum okkur svo aperitivo útí sólinni, á bar sem situr við tjörninna niðrí "miðju". Cool Eftir það var haldið heim að gera sig til - og svo farið út að borða á (you guessed it) Brasilíska! En ekki hvað? hehe. Kissing Þar komu gestir úr Háskólanum, A.S.M, og nokkrir íslendingar.  Við vorum um 15 og það var bara gaman.  Svo eftir frábæra matinn þá fórum við á "djammið" á The Club, sem var super fun.  Og vil ég þakka fyrir mig! Og takk fyrir allar frábæru gjafinar!!! Grin

Svo er Gesta Maraþon okkar byrjað!  Halli og Anna komu á þriðjudaginn 13 mars, og verða hjá okkur í 2 mánuði í "chill - ferð" og að læra ítölsku.  Við fórum með þeim til Flórens síðustu helgi og var það nú frekar litrík ferð, gistum fyrsta kvöldið í Tuscan villa í fjöllunum rétt fyrir utan bæinn, og svo seinni nóttina í miðbæ Flórens.  Sátum mest bara á torgum að fá okkur drykk, og röltuðum út um allt.  Svo kemur fjölskyldan mín í 1 April, í e-r 10 daga, yfir páskana.  Og fjölskyldan hanns Stefáns í maí!  Alltaf gaman að fá fólk í heimsókn - ég er ennþá að bíða eftir að nokkrir hendist hingað út *hint*hint* you know who you are....

Annars er bara allt að gerast, good and bad:

BAD:

  • tölvan krassaði fyrir viku
  • ég fór til tannlæknis í gær
  • þarf kannski að fá spangir í TVO mánuði W00t

GOOD:

  • Er að fara til kanarí í april!!
  • Halligilli frændi og Anna eru í heimsókn!
  • ma&pa eru að koma
  • ég keypti mér loksins töff gallajakkaCool hehe

Fundum Outlet village rétt fyrir utan Flórens, sem var bara eins og einhver movie set village, mjög ó-ítölsk, með milljón designer outlet búðum.... töff

Annars vil ég fá að vita hvað er að frétta af öllum heima - hef ekki almennilega í nokkrum alveg mjög lengi, let me know whats going on, ég er dass einangruð hérna í milano Pinch

kossar og knús - Kata skataWink

texti:

"Give him two lips like roses and clover..."

(you know what to do)...


RECAP

hæ hó!Hér í Milano er mikið búið að gerast eftir jóla fríið. 
  • 11-18 janúar  - Teitur kom i heimsókn
  • 14-21 janúar - Héðinn kom í heimsóknLoL
  • 17 janúar - pabbi kom með nokkrum körlum og fórum við öll saman út að borða! (á brasilian)
  • 30 janúar - fyrsta prófiðSick
  • 27 janúar - Stefán varð 24 áraWizard - borðuðum á brasílíska namm namm
  • 9 febrúar - síðasta prófið - og erfiðasta!! Crying
  • 9-11 febrúar - Pabbi bauð okkur til Flórens yfir helgi - prófloka frí! Cool
  • 12- 16 febrúar - viku frí, chill í milano.... Tounge
  • 14 febrúar - valentínusar dagur - fórum með pabba að borða á besta japanska Ninja veitingarstaðnum í milano, sem foreldrar vinar minns eiga... EXTRA góður matur! (pabbi minn var sko einu sinni ninja)
  • 15 febrúar - fórum að borða á brazilian með pabba - ofcourse... uppáhalds staðurinn okkar allra!!
  • 16-17 febrúar - Brunuðum við öll til Verona, fair Verona, í eina nótt, þar sem Mamma, Stóra, Siggi, Elin og Stefán Geir hittu okkur um kvöldið,  ný komin frá Islandi.  Þar var Carnevale ný búið og fullt af confetti og drasli út um ALLT... Gasp
  • 17-24 febrúar - SKÍÐA VIKA!!! (aka White Week) gaman gaman! Þá vorum við orðin 10: mamma, pabbi, ég, stefán (stóri), siggi, elin, stóra, stefán (litli), gunnar örn, og andri.  byrjuðum strax að skíða þegar við mættum á staðinn, svo var bara vaknað kl hálf átta (7:30) á hverjum degi og skíðað upp og niður fjöllin í ALLAN dag! Í hádeginu var alltaf e-ð nice að borða í fjöllunum, eins og til dæmis á steinasteikarstaðnum fræga o.s.frv.  Eftir skíðin var farið á Aprés Sky barinn við hótelið, og svo í "spa & relax" area á hótelinu, þar sem strákarnir fóru alltaf í saunu og að leggja sig, krakkarnir í heita pottin, og við eðal dömurnar í nudd .... life was goood.... það var boðið uppá nudd konu sem var "so so", og svo "Nudd Guru" sem var 50 og e-ð ára gamall karl sem var víst einu sinni "fótbolta nuddari"... Errmen engin okkar kvennana þorði til hans, þannig að við sættum okkur bara við "so so" nuddin hehe.  Þessi vika var svo frábær, og rosalega skemmtilegt að gera e-ð öðruvísi!LoL
  • 24-25 febrúar - niður úr fjöllunum og til Verona --> fengum að sofa út!!! fórum öll á létt shopping spree, og svo 25 fóru allir heim til ÍslandsBlush en við Stefán (stóri) brunuðum heim til bella MilanóWink
  • Síðan við komum heim höfum við verið í skólanum, og úti að leika okkur í góða veðrinu, hér hefur verið 15 til 20 stiga hiti alla vikuna, á þriðjudaginn 27, fórum við meðal annars að skoða múnka klaustur og sirkus rétt hjá Milano 3 ..... very interesting...Sideways
  • 28 febrúar - Elin litla systir átti afmæli og varð 11 ára!!!Whistling
  • 1 Mars- keyrðum til Lucca í Tuscany með nokkrum krökkum úr skólanum og hittum "The president" og "The Founder" of ESE University.  Lucca er rosa fín borg... smá dúfu vandarmál en annars er Tuscany bara yfir höfuð mjöf flott.Smile

 Á MORGUN Á ÉG AFMÆLI!!! yes yes 3 mars verð ég 21 árs W00t og verður haldið uppá það með því að fara út að borða á (ofcourse) brasilian "Rio's", "where everyone knows your name" staðurinn okkar Stefáns hehe.  Ég er búin að bjóða fullt af liði þangað, og ykkur er öllum boðið líka að sjálfsögðu... flest öllum, that is.  Ég mun taka á móti gjöfum milli kl 12 - 14 á morgun..... og gestum milli kl 17 - 19 Joyful

Þar sem ekki var almennilega haldið uppá afmælið hanns Stefáns, þar sem við vorum í prófum, þá segjum við bara að hvaða djamm sem verður eftir matinn sé partý okkur beggja! hehe.

Allavegana þá finnst mér þetta vera meira en nóg í bili....

Kveðja,

Kata Skata bara 20 ára Halo


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband